Innlent

Flestir fluttu til Norðurlandanna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tæplega 320 þúsund manns bjuggu á Íslandi í lok nýliðins árs.
Tæplega 320 þúsund manns bjuggu á Íslandi í lok nýliðins árs.
Alls bjuggu 319.560 manns á Íslandi í lok nýliðins árs, 160.360 karlar og 159.200 konur. Landsmönnum fjölgaði um 470 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 20.930 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 203.570 manns. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofan birti í morgun.

Á 4. ársfjórðungi síðasta árs fæddust 1.020 börn, en 500 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 70 einstaklingar frá landinu umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 15 umfram aðflutta, en brottfluttir erlendir ríkisborgarar voru 50 fleiri en þeir sem fluttust til landsins. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 240 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 370 íslenskir ríkisborgarar af 620 alls. Af þeim 720 erlendum ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 210 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku, eða 220, 140 frá Noregi og 90 frá Svíþjóð, eða samtals 450 manns af 610. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 260 til landsins af alls 660 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 40 erlendir ríkisborgarar til landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×