Innlent

Sigursteinn Gíslason látinn

Sigursteinn Gíslason er látinn
Sigursteinn Gíslason er látinn Mynd/Daníel Rúnarsson
Sigursteinn Gíslason er fallinn frá eftir harða baráttu við krabbamein. Hann var 43 ára gamall.

Sigursteinn var einn sigursælasti knattspyrnumaður Íslands og varð til að mynda níu sinnum Íslandsmeistari með ÍA og KR. Eftir knattspyrnuferilinn fór hann út í þjálfun og var til dæmis aðstoðarþjálfari hjá KR og einnig aðalþjálfari hjá Leikni í Breiðholti.

Þar náði hann góðum árangri þar til hann hætti störfum síðasta sumar eftir að hann greindist með krabbamein.

Sigursteinn lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×