Sameiningatillögur alveg víðs fjarri Hugrún Halldórsdóttir skrifar 16. janúar 2012 19:54
Sparnaður af sameiningu reykvískra grunnskóla hljóðar upp á tæpar tólf milljónir fyrir árið 2012, eða núll komma núll sex prósent af rekstri grunnskólanna. Varla ómaksins virði að hafa lagt upp í þessa vegferð, segir borgarfulltrúi. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi, fékk nýverið svör við fyrirspurn sem hann sendi fjármálastjóra skóla og frístundarsviðs en þar óskaði hann meðal annars eftir upplýsingum um heildarsparnað af sameiningu grunnskóla og leikskóla. „Ég þekki það frá því ég var formaður menntaráðs að það að reka skóla saman, eða sameiginlega, hefur hverfandi áhrif fjárhagslega. Það er nánast engin sparnaður í slíku og nú hefur það verið staðfest," segir Júlíus Vífill. Hagræðing á árinu 2012 vegna sameininga leikskóla hljóðar upp á 60 milljónir króna en sparnaður vegna sameininga grunnskóla er mun minni. Þá sé sparnaður í grunnskólum tæpar 12 milljónir króna. Þetta segir hann samsvara 0,06% af rekstri grunnskólanna. „Svo ég noti nú orð borgarstjórans sjálfs, sem sagði að það væri ekki ómaksins virði að moka göturnar þegar fólk var að detta hér út um alla borg, þá getur það nú varla talið ómaksins virði að hafa lagt út í þessa vegferð með þessa niðurstöðu fyrir grunnskólana í Reykjavík," segir hann. Sparnaður á Skóla og frístundasviði í heildina þ.e. vegna sameiningar frístundaheimila, leikskóla og grunnskóla eru 93 milljónir eða 0,3% af heildarrekstri sviðsins. „Það var lagt upp með það að þessar sameiningatillögur myndi skila 312 milljóna króna sparnaði og nú er ljóst að það er alveg víðs víðs fjarri," segir Júlíus Vífill.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira