Innlent

Hátt í hundrað tilkynningar vegna tjóns - og þeim mun fjölga

Þessa mynd tók Anton Brink fyrir helgi.
Þessa mynd tók Anton Brink fyrir helgi.
Hátt í hundrað tilkynningar hafa borist til tryggingafélaganna VÍS, Varðar og Sjóvá vegna tjóns eftir óveðrið um helgina. Langflestar tilkynningarnar koma frá höfuðborgarsvæðinu þar sem vindur var mikill.

Helstu ástæður tjónanna eru skemmdir á þökum, svo sem þegar þakplötur fjúka af. Einnig var nokkuð um tjón á þakköntum. Bílar skemmdust mikið vegna hluta sem fuku á þá. Mikið var um að rúður brotnuðu í bifreiðum.

Þess ber að geta að tjónatilkynningum rignir enn inn samkvæmt upplýsingum frá fyrrnefndum tryggingafélögum. Búast má við að tilkynningum muni fjölga verulega í dag og á næstu dögum. Kostnaður hefur ekki enn verið reiknaður út en gert er ráð yfir því að slíkt verði gert síðar í vikunni þegar umfang tjónsins liggur fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×