Innlent

Kaþólska kirkjan stofnar fagráð

Kaþólska kirkjan stofnar fagráð
Kaþólska kirkjan stofnar fagráð
Biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, pétur Burcher, skipaði í dag þá Eirík Elís Þorláksson, hrl og sérfræðing við lagadeild Háskólans í Reykjavík, April Frigge, mannfræðing og Skúla Guðmundsson lögfræðing til að veita forstöðu nýju fagráði kirkjunnar varðandi úrvinnslu rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar.

Meðal hlutverka og markmiða ráðsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá biskupnum, er að veita álit um bótarétt þolenda kynferðisofbeldis eða annars ofbeldis innan kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Þá er þeim einnig gert að leggja fram tillögur um úrbætur í ljósi tillagna rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar.

Kaþólska kirkjan hyggst einnig koma á fót ráði sem tekur á móti ábendingum og tilkynningum um ásakanir varðandi kynferðisofbeldi eða önnur ofbeldisbrot sem kunna að koma upp innan kirkjunnar í framtíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×