Tók sjö mánuði að óska svars vegna sakamáls Jóns Baldvins Erla Hlynsdóttir skrifar 24. febrúar 2012 20:00
Það tók utanríkisráðuneytið sjö mánuði að óska eftir upplýsingum vegna rannsóknar á meintum lögbrotum Jóns Baldvins Hannibalssonar, sem var þar æðsti yfirmaður til fjölda ára. Eins og fram kemur í Nýju lífi kærði Guðrún Harðardóttir, systurdóttir eiginkonu Jóns Baldvins, hann fyrir kynferðisbrot árið 2005. Þau bréf sem voru enn til rannsóknar við endurupptöku málsins voru skrifuð af Jóni Baldvin í Washington D.C. í Bandaríkjunum þar sem hann var sendiherra, og send til Guðrúnar í Venesúela, þar sem hún var skiptinemi. Á Íslandi eru lög um brot gegn blygðunarsemi en við lögreglurannsókn málsins þurfti að afla upplýsinga um hvort sambærileg lög væru til staðar, annars vegar í Bandaríkjunum og hins vegar í Venesúela. Lögreglan óskaði eftir upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu, sem vísaði erindinu til utanríkisráðuneytisins í mars 2006. Utanríkisráðuneytið var í tæpt ár að afla þessara upplýsinga. Spurningin sem utanríkisráðuneytið þurfi að svara var þessi: Er sambærilegt lagaákvæði í gildi, annars vegar í Bandaríkjunum og hins vegar í Venesúela? Það er allt og sumt. Fréttastofa óskaði gær eftir svörum frá ráðuneytinu um ástæður þessara tafa. Í svari ráðuneytis kemur fram að sjö mánuðum eftir að erindið barst ráðuneytinu var sent fyrirspurn til Washington vegna þessa. Ekkert svar barst. Því varfyrirspurnin send til sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík sem svaraði þremur mánuðum eftir að erindið var fyrst sent til Washington. Þá tók það ráðuneytið alls ellefu mánuði að afla fullnægjandi svara um löggjöf í Venesúel en ekki kom fram í svari hvenær erindið var fyrst sent. Ráðuneytið sendi svar sitt fimm dögum eftir að dómsmálaráðuneytið hafði sent þangað ítrekun vegna málsins. Í skriflegu svari utanríkisráðuneytis til fréttastofu er tekið fram að að hvergi í gögnum málsins komi fram „að það tengist fyrrverandi starfsmanni þess", en Jón Baldvin var þar bæði ráðherra og síðar sendiherra. Ráðuneytið hefur ekki svarað hvort um óeðlilega töf var að ræða.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira