Lífið

Skemmtilegt að geta grett sig og geiflað

Isla Fisher finnst gaman að talsetja teiknimyndir. Hún leikur tannálfinn í nýrri jólamynd.
Isla Fisher finnst gaman að talsetja teiknimyndir. Hún leikur tannálfinn í nýrri jólamynd. nordicphotos/getty
Isla Fisher segir draumavinnuna vera að talsetja teiknimyndir. Þótti betra að vera ekki í mynd.

Ástralska leikkonan Isla Fisher ljáir Tannálfinum rödd sína í kvikmyndinni Rise of the Guardians. Hún segir vinnuna við talsetningar stórskemmtilega.

Fisher viðurkennir að það hafi verið freistandi að mæta til vinnu í náttfötunum á meðan á talsetningu stóð. „Það var virkilega freistandi, enda sér mann enginn. Maður fær líka að geifla sig og gretta eins og mann lystir og það var stórskemmtilegt," sagði Fisher í viðtali við Empireonline.com.

Tannálfurinn í myndinni er töluvert ólíkur því sem fólk hefur gert sér í hugarlund, en þessi er blanda af álfi og kólibrífugli. „Ég vissi hvernig Tooth átti að líta út allt frá upphafi. Útlit hennar þróaðist þó nokkuð á þessum þremur árum sem tók að gera myndina."

Leikkonan segist einnig vilja vinna meira og oftar við talsetningar. „Ég mundi elska það, þetta er draumastarfið. Mér finnst miklu þægilegra að vera ekki í mynd heldur geta falið mig á bak við aðra veru."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.