Lífið

Blindfullur og gifsblandan misheppnuð

gifstólið sem Cynthia Plaster Caster tók af Smutty Smiff var algjört klúður.
gifstólið sem Cynthia Plaster Caster tók af Smutty Smiff var algjört klúður. fréttablaðið/GVA
Rokkabillíkóngurinn Smutty Smiff, útvarpsmaður á X-inu, leyfði goðsagnakenndu grúppíunni Cynthiu Plaster Caster að taka gifsafsteypu af getnaðarlim sínum.

„Þetta byrjaði vel en svo fór allt í steik,“ segir útvarpsmaðurinn og kontrabassaleikarinn Smutty Smiff, en grúppían Cynthia Albritton reyndi að gera afsteypu af getnaðarlim hans árið 1980.

Albritton, sem er betur þekkt sem Cynthia Plaster Caster, gerði garðinn frægan á 7. og 8. áratug síðustu aldar með gifsafsteypum sínum af æxlunarfærum frægra tónlistarmanna. Hennar frægasti skúlptúr er án efa af veldissprota gítargoðsins Jimi Hendrix.

„Við vorum bæði blindfull og gifsblandan var eitthvað misheppnuð. Ég fékk því aldrei að vera meðal sýningargripa,“ segir Smutty, sem hefur verið búsettur hér á landi síðustu fimm ár og á íslenska eiginkonu.

Nafn Smuttys má engu að síður finna á vefsíðu Albritton, en þar hefur hún skrásett allar þær afsteypur sem hún hefur gert.

Á lista Albritton, sem bauð sig fram til borgarstjóra Chicago árið 2010, kennir ýmissa grasa. Má þar nefna nöfn á borð við fyrrnefndan Hendrix, Jello Biafra úr pönksveitinni Dead Kennedys, Eric Burdon úr The Animals, og söngkonurnar Peaches og Karen O.

„Ég spilaði reglulega í Chicago með hljómsveitinni minni, The Rockats, og hún kom að sjá okkur. Okkur varð vel til vina og hún stakk upp á því að við gerðum þetta,“ segir Smutty, en hann hugsaði sig ekki tvisvar um. „Tilhugsunin um afsteypur okkar Hendrix, hlið við hlið, var nóg til þess að ég lét slag standa.“

Aðspurður um hvað eiginkonunni finnist um þetta uppátæki segist Smutty reyndar aldrei hafa sagt henni frá þessu. „Ég var tvítugur og ógiftur. Hún á bara eftir að hlæja að mér.“

haukur@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.