Þetta er einhvers konar sambabolti 11. desember 2012 17:00 Óskar Guðjónsson og Ife Tolentino hafa gefið út sína fyrstu plötu saman. fréttablaðið/gva
Brasilíumaðurinn Ife Tolentino, samstarfsmaður Óskars Guðjónssonar, gaf Sócrates eiginhandaráritun. „Þetta eru allt einhvers konar ástarsöngvar, hvort sem ástin fer vel eða illa,“ segir saxófónleikarinn Óskar Guðjónsson. Hann hefur gefið út plötuna Vocé Passou Aqui ásamt brasilíska söngvaranum og gítarleikaranum Ife Tolentino. Þeir félagar kynntust fyrir tólf árum í London þegar Óskar var búsettur þar í borg. „Ég elti konuna mína sem var á leiðinni þangað í nám og það eina sem ég var með á stefnuskránni var að hitta alvöru brasilískan bossanóva-spilara. Það bentu mér allir í áttina til Ife,“ segir Óskar. „Það mynduðust strax rosalega sterk vináttutengsl okkar á milli.“ Ife hefur komið til Íslands á hverju ári undanfarin tíu ár. Hann spilaði til dæmis í brúðkaupi Óskars sumarið 2002 og horfði daginn eftir með honum á úrslitaleik heimsmeistarakeppninnar í fótbolta sem Brasilíumenn unnu. Ife hefur einmitt vakið athygli þarlendra knattspyrnumanna því eitt sinn þegar hann var bassaleikari með þekktum brasilískum söngvara bað fyrrum landsliðsmaðurinn Sócrates hann um að árita fyrir sig plötuna þeirra. „Þetta er ansi magnað fyrir okkur sem könnumst við Sócrates og Zico,“ segir Óskar. Nýja platan er sú fyrsta sem Óskar og Ife gera saman. „Þetta er gífurlega krefjandi músík að spila. Þetta er einhvers konar sambabolti. Hún er léttleikandi á yfirborðinu en það er alveg hellingur í gangi.“ Útgáfutónleikar Óskars og Ife verða í Iðnó í kvöld og hefjast þeir klukkan 21. - fb
Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Fleiri fréttir Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Sjá meira