Lífið

Varð eltihrellir vegna Hobbita

Cate Blanchett í hlutverki Galadriel í Hobbitanum.
Cate Blanchett í hlutverki Galadriel í Hobbitanum.
Cate Blanchett breyttist í hálfgerðan eltihrelli þegar hún frétti af gerð Hobbita-þríleiksins. Leikkonan fer með hlutverk álfkonunnar Galadriel í The Lord of the Rings og í Hobbitanum.

„Ég bjóst ekki við meiru eftir að Lord of the Rings lauk. Ég hélt að því ferðalagi væri lokið en mín þátttaka í þeim þríleik var alltof stutt,“ sagði Blanchett við Flick and Bits. „Þegar ég heyrði að þau ætluðu að gera Hobbitann gerðist ég eltihrellir. Ég hringdi í umboðsmanninn minn nánast á hverjum einasta degi og spurði hvort eitthvað væri að frétta og hvort Galadriel yrði í myndunum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.