Skutla bílunum heim fyrir ölvaða fólkið 7. desember 2012 07:00 Ómar Þröstur Hjaltason og Kristinn Sævar Magnússon reka bílstjóraþjónustuna Keyrðu mig heim. Fréttablaðið/pjetur
Keyrðu mig heim nefnist nýstofnað fyrirtæki sem sérhæfir sig í bílstjóraþjónustu fyrir ölvaða. Félagarnir Ómar Þröstur Hjaltason og Kristinn Sævar Magnússon eru með bílstjóra á sínum snærum sem sækja samkvæmisljón í bæinn og skutla þeim heim á þeirra eigin bíl. „Þetta er hugsað sem forvörn gegn ölvunarakstri,“ segir Ómar og segir að nú geti fólk haft samband við Keyrðu mig heim eftir jólahlaðborðið í stað þess að fara sér að voða með því að keyra eftir einn eða tvo. „Það eru hátt í tíu manns teknir fyrir ölvunarakstur um hverja einustu helgi og ef þeir sem komast upp með aksturinn eru teknir með eru þetta eflaust miklu fleiri.“ Eftir vel heppnaða prufuhelgi opnaði tvíeykið vefsíðuna Keyrdumigheim.is og þar má sjá verðskrá, en ódýrasta heimkeyrslan kostar 3.990 krónur. Verðið er breytilegt eftir svæðum og dýrast er að láta skutla sér í Mosfellsbæ, en sá rúntur kostar 6.990 krónur. Ómar bendir þó á að þjónustan sé mun ódýrari en lægsta sekt fyrir ölvunarakstur, en hún er um 70 þúsund krónur. Ómar og Kristinn eru báðir af Suðurnesjunum en til að byrja með nær starfsemin aðeins yfir höfuðborgarsvæðið. Nokkrar fyrirspurnir hafa borist um hvort fyrirtækið taki að sér heimkeyrslu bíla fólks á leið í flug frá Keflavík. „Það er alveg möguleiki ef eftirspurn leyfir,“ segir Ómar og segir fyrirtækið geta fjölgað bílstjórum mjög fljótt ef þörf krefur. „Við erum fjögur eins og er, þar af tveir bílstjórar, en svo sjáum við bara til með framhaldið.“ - hva
Mest lesið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Tónlist Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Fleiri fréttir „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Sjá meira