Innlent

Nýr maður við stjórnvölinn

GAR skrifar
Jón Svanberg Hjartason
Jón Svanberg Hjartason
Jón Svanberg Hjartarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá 1. janúar 2013. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu var samið um starfslok forvera Jóns í starfinu fyrr í þessum mánuði.

Að því er segir í frétt frá SL hefur Jón verið félagi í Björgunarsveitinni Sæbjörgu á Flateyri frá 1986 og var formaður sveitarinnar árin 1996 til 2002. Hann var lögreglumaður á Ísafirði frá 1994 til 2009, þar af varðstjóri frá 1996-2009. Frá 2009 hefur Jón verið framkvæmdastjóri Iceland ProFishing ehf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×