Innlent

Hillir undir náttúruminjasýningu í Perlunni

Heimild borgarráðs er bundin við það að viðunandi leigusamningur um sýningu Náttúruminjasafns Íslands náist við ríkið.
Heimild borgarráðs er bundin við það að viðunandi leigusamningur um sýningu Náttúruminjasafns Íslands náist við ríkið. fréttablaðið/stefán
Borgarráð tók tillögu Jóns Gnarr borgarstjóra um að heimila Reykjavíkurborg að ganga til samninga um kaup á Perlunni af Orkuveitu Reykjavíkur til umfjöllunar í gær.

Í tillögunni er Reykjavíkurborg einnig heimilað að ganga til samninga við ríkið um að það leigi húsið í allt að 15 ár og komi þar upp náttúruminjasýningu. Að auki verður Reykjavíkurborg heimilað að gera breytingar á Perlunni fyrir allt að 100 milljónir króna gangi samningar við ríkið eftir. Jón segir að náttúruminjasýning í Perlunni sé fagnaðarefni fyrir landsmenn alla, ekki síst fyrir skólabörn og ferðaþjónustuna í borginni.

„Þetta er frábært mál. Perlan er best komin í opinberri eigu á þessu fallega og viðkvæma útivistarsvæði. Ég vonast til þess að þarna verði blómleg starfsemi sem laði að innlenda sem erlenda gesti. Börn og unglingar fá þarna einstakt tækifæri til að auka víðsýni sína og fræðast um náttúru Íslands og Perlan mun fá göfugra hlutverk en hún hefur haft,“ segir borgarstjóri.

Í greinargerð segir að með kaupunum gefist Reykjavíkurborg tækifæri til þess að stjórna uppbyggingu og nýtingu svæðisins til framtíðar.

Tillögunni var frestað um eina viku að beiðni borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×