Innlent

Fóru til Hollands fyrir bleyjusjóðinn

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Magnús L. Sveinsson.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Magnús L. Sveinsson.
Fram kemur í bréfi Ríkisendurskoðunar að Alicante-ferð tengdasonar séra Sigurðar Helga Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Eirar, hafi verið greidd úr "þróunarsjóði" sem hafi haldið utan um afslátt af innkaupum á sjúkrableyjum. Í svarbréfi frá séra Sigurði segir að með tilkomu þess sjóðs hafi komið "möguleikar til að standa undir kostnaði sem rekstrarsjóður réði ekki við. Þar má til dæmis nefna að þegar formaður og varaformaður fóru í kynnisferð til Hollands var það greitt úr Þróunarsjóði."

Á þeim tíma voru Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Magnús L. Sveinsson formaður og varaformaður stjórnar Eirar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×