Pólitísk sýning um innri frið Bergsteinn skrifar 31. október 2012 00:01 Tolli Morthens Myndir/ Anton
Myndlistarmaðurinn Þorlákur Kristinsson Morthens - Tolli - fagnar 30 ára starfsafmæli um þessar mundir og opnar af því tilefni sýninguna Friður í Smiðjunni Listhúsi á morgun. „Ég tileinka sýninguna því að það eru 30 ár síðan ég hélt ásamt félögum mínum sýninguna „Sjö" í Norræna húsinu árið 1982, sem var eiginlega upphaf „nýja málverksins" svokallaða hér á landi. Það hefur verið töluverð breyting frá þessum hráa pönkaða stíl sem ég hafði í upphafi yfir í þessar ljóðrænu landslagsmyndir, sem ég hef einbeitt mér að í seinni tíð, og endurspegla fremur andlega heim en efnislegan. Sá heimur ber með sér frið og hugarró." Tolli segir ferilinn vera skrásetningu á ástandi listamannsins á hverjum tíma og í sínu tilfelli hafi það verið alla vega. „Það voru stór tímamót hjá mér fyrir sautján árum árum þegar ég lagði fíkniefna og áfengisneyslu á hilluna og hóf nýtt lf án slíkra stoðefna. Slíkt ferðalag leiðir mann alltaf lengra og lengra í sjálfskönnun þar sem maður finnur sífellt meiri frið." En þótt efnistökin séu persónuleg segir Tolli inntak sýningarinnar á hinn bóginn samfélagslegt og pólitískt. „Ég legg þessa yfirskrift inn í samfélagsumræðuna eins og hún er í dag því við þurfum á meiri frið að halda, jafnvel þótt menn greini á málefnalega. Þetta tilfinningalega stjórnleysi í þjóðfélaginu, gremjan og reiðin, virðist ekkert vera á undanhaldi heldur finna sér nýjan farveg. Sú reiði sem reis upp í hruninu er í raun viðhaldið af þeim sem iðka stjórnmálin.Ég vil ekki endilega að menn skipti um skoðun í stjórnmálum, heldur vinnubrögð. Að menn losi sig undan karma fortíðarinnar, þessu oki að þurfa að ganga inn í gremju og reiði genginna kynslóða."
Mest lesið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Fleiri fréttir Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Sjá meira