Valdi fjölskylduna í stað Jólagesta Björgvins 30. október 2012 08:00 Söngvarinn ætlar að sjá son sinn frumsýna verk í Stokkhólmi í stað þess að syngja á Jólagestum Björgvins. „
Fjölskyldan gengur stundum fyrir vinnunni en það er alltof sjaldan. Mér fyndist að það þyrfti að vera alltaf,“ segir Egill Ólafsson. Söngvarinn er hættur við að koma fram á Jólagestum Björgvins Halldórssonar í Laugardalshöll vegna þess að sonur hans, dansarinn Gunnlaugur Egilsson, er að frumsýna verk í Stokkhólmi á sama tíma. „Maður getur ekki verið á tveimur stöðum í senn,“ segir Egill. Hann hafði fyrir löngu ákveðið að sjá verkið og þegar tímasetningu frumsýningarinnar var breytt varð að hann að afboða sig hjá Björgvini. „Það verður einvala lið þarna og það munar ekki um þótt eitt lítið tannhjól detti út.“ Egill hefur einu sinni áður sungið á Jólagestunum og hafði mjög gaman af. „Sumir miða við að jólin hefjist með Bó. Þetta var mjög hátíðlegt þegar ég var þarna og ég sendi mína sterkustu strauma í fjarveru minni.“ Björgvini sjálfum þykir leitt að njóta ekki lengur krafta Egils. „Það er mjög vont að missa Egil. Hann var kominn með svo flott prógramm þarna inn en svona er þetta bara. En við erum með fullt af frábærum listamönnum og þarna verða svaka fallbyssur,“ segir Björgvin og nefnir til sögunnar nýja söngvara Jólagesta, þau Eirík Hauksson, Bubba Morthens, Valdimar og Þórunni Antoníu. Hann bætir við að þrír söngvarar stígi á svið í stað Egils, eða Kristjana Stefánsdóttir, Dísa og sonur hans Krummi. „Við höldum ótrauð áfram og vonum að fólk skemmti sér vel fimmtánda desember.“
Mest lesið Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Menning Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Varð að vera flottastur í eigin teiti Tíska og hönnun Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Lífið Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Námið ekki eins krefjandi og á Tene Tónlist Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Fleiri fréttir Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Sjá meira