Syngur Britney Spears í rauðum galla úr gervileðri 21. október 2012 16:00 Margrét Erla Maack kemur fram í þessum rauða Britney-galla á fullorðinssirkússýningu kvöldsins en hann er sérsaumaður af einni helstu blæði-saumakonu landsins. Fréttablaðið/Anton
Margrét Erla Maack sjónvarpskona er meðlimur Sirkus Íslands og mun leika á als oddi í heilgalla líkt og Britney gerði ódauðlegan í sirkussýningunni Skinnsemi #6 í Iðnó í kvöld. „Ég hringdi í allar kynlífsbúðir á landinu og kannaði hvort þær ættu Britney-gallann en fékk þau svör að efni hans væri of dýrt til að eiga það á lager,“ segir Margrét Erla Maack sjónvarpskona úr Kastljósi og meðlimur Sirkus Íslands. Hún hefur látið sérsauma á sig rauðan heilgalla úr gervileðri líkt og Britney Spears klæddist í myndbandinu við lagið Oops, I Did It Again. Búningurinn er fyrir fullorðinssirkussýninguna Skinnsemi #6 sem fram fer í kvöld kl. tíu í Iðnó. „Okkur fannst fyndið að taka myndbandið og dansa það,“ segir Margrét og á við fyrrnefnt myndband sem verður sett á svið í kvöld. „Þar syng ég með röddinni hennar. Ég hef verið að vinna í henni og er núna að drepast í hálsinum,“ segir hún. En hver saumaði þennan kynþokkafulla galla á þig? „Stelpa sem ég þekki sem er ein færasta blæði-saumakona landsins en hún er ein af mjög fáum sem kann að vinna með þessi efni,“ segir Margrét. Sýning kvöldsins er sjötta fullorðinssirkussýning hópsins sem áður hafði getið sér gott orð fyrir fjölskyldusirkus. Hún segir þau fá frelsi til að gera ögn dónalegri hluti í fullorðinssirkusnum. „Hann er fullorðins með fullorðins húmor. Við sýnum atriði sem okkur hefur alltaf langað að gera en hafa aldrei passað. Þetta fer þó ekki yfir velsæmismörk. Þá kemur enginn,“ segir hún og hlær. „En það er af nógu að taka. Ég er líka í Bollywood-eldatriði og síðan höfum við verið að semja kan-kan dansa.“ En mun rauði heilgallinn rata á skjái landsmanna í Kastljósinu? „Nei, I wish. Ætli hann fái ekki að bíða fram að hrekkjavökunni.“ hallfridur@frettabladid.is
Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fleiri fréttir Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Sjá meira