Eyrnasneplarnir teygjanlegir 20. október 2012 17:00 Bassaleikarinn Hólmkell Leó Aðalsteinsson er með 30 millimetra kefli, eða „tunnel“ í eyranu sem hefur vakið athygli vegna stærðarinnar en hann skartar einnig um 20 húðflúrum víðs vegar um líkamann. Fréttablaðið/stefán
Bassaleikarinn Hólmkell Leó Aðalsteinsson skartar 30 millimetra kefli í eyrnasneplunum og viðurkennir að móðir sín sé ekki hrifin af uppátækinu. Tíska „Þetta var mjög vont til að byrja með en svo venst þetta. Eyrnasneplarnir er svo teygjanlegir,“ segir Hólmkell Leó Aðalsteinsson, bassaleikari í hljómsveitinni Endless Dark, sem er með 30 millimetra kefli í eyrunum, eða svokölluð „tunnel“. Hólmkell hefur vakið athygli fyrir stærð gatsins í eyrnasneplunum enda eru þau óvenju stór. Hann kveðst oft hafa verið stoppaður út á götu og og finnur að fólk glápir á sig, án þess að kippa sér mikið upp við það. Hólmkell hóf stækkunarferlið á gatinu árið 2010 með því að fá sér venjulegat gat í eyrað. „Ég byrjaði að fá mér gat í eyrað og svo stækkaði ég það jafnt og þétt. Fyrstu 10 millimetrarnir voru sársaukfyllstir.“ Ekki þykir æskilegt að stækka gatið nema um 2 millimetra í einu og verða að líða að minnsta kosti tvær vikur á milli stækkunar. „Maður verður að leyfa bólgunni að hjaðna inn á milli því ef maður gerir það ekki þá kemur bara blóð og vesen. Þetta er þolinmæðisverk,“ segir Hólmkell og kveðst ekkert finna fyrir gatinu núna. „Þetta verður auðveldara því þyngri sem lokkaranir verða en nú er ég hættur að stækka í bili. Það samt kitlar alltaf að gera gatið aðeins stærra.“ Bassaleikarinn viðurkennir að fjölskyldan sín sé ekki alltof hrifin af uppátækinu og þá sérstaklega móðir hans. „Ég var með útstæð eyru sem barn og fór í aðgerð til að laga það á sínum tíma. Mömmu finnst synd að ég skuli vera að eyðileggja á mér eyrun.“ Hólmkell þarf einmitt að fara í lýtaaðgerð til að laga gatið ef hann ákveður að fjarlægja keflið úr eyranu í framtíðinni. „Það fer náttúrulega eftir því hvað maður tekur sér fyrir hendur í framtíðinni en ég held að ég láti nú laga á mér eyrum eftir svona 10 ár eða þegar ég verð pabbi.“ alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Kíkti í kaffi til kanslarans Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Lífið Madison Beer trúlofast NFL-kappa Lífið Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Lífið Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Fleiri fréttir „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Sjá meira