Alda er að deyja úr gelgju Álfrún skrifar 13. október 2012 06:00 Annalísa Hermannsdóttir hefur leikið í Pressu frá upphafi og er hlutverk hennar veigameira í nýju seríunni sem hefur göngu sína á morgun. Hún hefur einnig landað hlutverki í sinni fyrstu bíómynd, Vonarstræti. Fréttablaðið/valli „
Þetta hefur verið ótrúlega skemmtileg vinna,“ segir hin fimmtán ára gamla Annalísa Hermannsdóttir. Hún leikur eitt af aðalhlutverkunum í sjónvarpsþáttunum Pressu en þriðja þáttaröðin fer í loftið á morgun. Annalísa var tíu ára gömul þegar hún landaði hlutverki Öldu, dóttur blaðakonunnar Láru, í sjónvarpsþáttunum vinsælu. Annalísa var þá í Sönglist og ætlaði að verða söngkona en smitaðist af leiklistarbakteríunni í Pressu. Nú er hún staðráðin í að reyna frekar við leiklistina, en Annalísa fékk hlutverk í myndinni Vonarstræti sem tökur hefjast á eftir áramót. Þar mun hún leika á móti Þorvaldi Davíð Kristjánssyni og Heru Hilmarsdóttur. „Þetta verður í fyrsta sinn sem ég leik í kvikmynd og það er mjög spennandi,“ segir leikkonan unga. Annalísa er í 10. bekk í Garðaskóla og segir skólafélagana áhugasama um starf sitt. „Þeim finnst þetta spennandi, en þeir stríða mér líka smá. Eins og þegar ég pissaði á mig í síðustu seríu, þá fékk ég að heyra ýmislegt en það er bara fyndið.“ Hlutverk Önnulísu hefur vaxið með hverri seríunni. Í þessari þriðju þáttaröð er Alda í uppreisn og flækist inn í sakamál sem Lára móðir hennar er að rannsaka. „Ég má ekki segja of mikið, en Alda er að deyja úr gelgju og hefur flækst inn í slæman félagsskap í þessari seríu. Hún gerir móður sinni lífið leitt og er ekki á góðum stað í lífinu,“ segir Annalísa sem er bæði spennt og kvíðin fyrir frumsýningunni á morgun. Annalísa ætlar að horfa á fyrsta þáttinn með fjölskyldu sinni og vinum. Hún segist orðin nokkuð sjóuð í að sjá sjálfan sig á skjánum. „Ég er búin að vera rosalega spennt og hef talið niður dagana í fyrsta þáttinn. Svo í vikunni byrjaði ég að verða smá kvíðin líka því í þessari seríu reynir meira á mig og leiklistarhæfileikana.“
Mest lesið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Laufey á landinu Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Fleiri fréttir Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Sjá meira