Innlent

Kosningar um sameiningu

Sveitarfélagið hefur átt í fjárhagserfiðleikum eftir efnahagshrunið.
fréttablaðið/stefán
Sveitarfélagið hefur átt í fjárhagserfiðleikum eftir efnahagshrunið. fréttablaðið/stefán
Íbúum í Garðabæ og á Álftanesi gefst kostur á að kjósa um sameiningu sveitarfélaganna þann 20. október næstkomandi.

Samþykkt var á fundum bæjarstjórnanna beggja bókun þess efnis á fimmtudag. Tvær umræður um álit samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaganna hafa farið fram samkvæmt lögum. Atkvæðagreiðslan mun fara fram samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga.

Bæjarstjórnir sveitarfélaganna eru sammála um að sameining sveitarfélagana sé menningarlega, skipulagslega og rekstrarlega hagkvæmur kostur.

Tillögurnar verða kynntar íbúum með minnst tveggja mánaða fyrirvara.- bþh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×