Innlent

48 keppa í Músíktilraunum

Alls keppa 48 hljómsveitir á Músíktilraunum 2012 sem standa yfir í Austurbæ frá 23. til 31. mars. Mikill áhugi var á keppninni í ár og sóttu tæplega sextíu hljómsveitir um þátttöku.

Undanúrslitakvöldin verða fjögur og spila því tólf hljómsveitir á hverju kvöldi. Sú nýbreytni verður í ár að eitt gestaband spilar í dómarahléinu á hverju kvöldi. Í ár verða það Sóley, Þórir, Sin Fang og Svavar Knútur.

Hægt er að nálgast upplýsingar um hljómsveitirnar sem taka þátt, hlusta á lög með þeim og sjá niðurröðun á hverju kvöldi á Musiktilraunir.is. Miða má nálgast á Midi.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×