Gjöld á flug komin að ýtrustu mörkum 16. febrúar 2012 05:30 Ögmundur Jónasson
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir svo kunna að vera að gjöld á innanlandsflug séu komin á ýtrustu mörk. Hann varar þó við miklum upphrópunum varðandi málið og segir gjöldin hafa hækkað minna en vísitalan síðustu ár. Málið var rætt á Alþingi í gær. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var málshefjandi. Hann sagði innanlandsflugið í alvarlegri stöðu. Því ylli bæði óvissa með Reykjavíkurflugvöll og skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Ríkisvaldið hefði fylgt marxískri stefnu undanfarin ár með það að leggja opinber gjöld á innanlandsflugið sérstaklega. „Á næstu tveimur árum verða gjöld á Reykjavíkurflugvöll hækkuð um 250 milljónir í tveimur áföngum, á atvinnustarfsemi sem veltir fjórum milljörðum árlega.“ Ráðherra sagði gjöldin undir vísitöluhækkunum, en með hækkun í apríl, og enn frekari hækkun, færu þau yfir þau mörk. Hluta þeirra mætti skýra með viðhaldi, en í stað þess að setja einn milljarð af fjárlögum í viðhald flugvalla hefði verið valin sú leið að setja umrædd gjöld á. Einar krafði ráðherra um afstöðu sína varðandi staðsetningu flugvallarins. Ögmundur áréttaði þá skoðun sín að hann ætti að vera þar sem hann er. Hann vildi ná betra jafnvægi á flutningum á lofti, láði og legi og flugvöllur í Vatnsmýri væri grundvöllur þess.- kóp
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sjá meira