Spyr hvort hægt sé að gera tæra laxveiðiperlu úr Þjórsá 15. febrúar 2012 08:00 Orri segir að þrátt fyrir „þúsund spurningar“ séu tækifærin slík að rannsaka megi að hreinsa ána svo hún henti til stangveiða. fréttablaðið/anton
Rannsókn á því hvort gera megi Þjórsá að veiðiparadís með minni framburði, er verðugt verkefni að mati Orra Vigfússonar, formanns NASF. Fyrsta skref yrði mat sérfræðinga á því hvort hugmyndin sé raunhæf. Orri Vigfússon, formaður NASF, verndarsjóðs villtra laxastofna, telur áhugavert að gera úttekt á því hvort gera megi Þjórsá að stangveiðiparadís með því að minnka framburðinn í ánni. Fyrsta skrefið yrði alltaf að kalla til hóp sérfræðinga til að skoða hvort um raunhæfan kost sé að ræða. Reynist svo vera gætu möguleikar til verðmætasköpunar með stangveiði verið afar miklir. „Ef það væri hægt að minnka framburðinn og hleypa sólarljósinu betur að þá myndi frumframleiðslan í ánni stóraukast með tilheyrandi áhrifum á lífríkið. Það má minna á það að Þjórsá, eins og Blanda, á upptök sín í Hofsjökli. Með Blönduvirkjun hreinsaðist áin og úr varð sú góða veiðiá sem við þekkjum,“ segir Orri og undirstrikar að um hugmynd sé að ræða og það liggi fyrir að mjög erfitt sé að hreinsa jafn mikið vatnsfall og Þjórsá. „Ég tel þó áhugavert að gera rannsókn á vatnasvæði Þjórsár með þetta í huga.“ Orri segir að líklega yrði að koma til einhvers konar mannvirki sem myndi hreinsa jökulgruggið úr árvatninu, til dæmis settjarnir. Hann minnir á að fyrir eru virkjanir í efri hluta Þjórsár, sem hugsanlega gætu leikið hlutverk við hreinsun framburðarins. Laxastofninn í Þjórsá er líklega stærsti villti laxastofn á Íslandi og meðal þeirra stærstu í Atlantshafi. Þess utan eru góðir stofnar sjóbirtings, auk staðbundins urriða og bleikju. Veiði í ánni hefur nær eingöngu verið bundin við netaveiði. Ástæðan er sú að Þjórsá er svo gruggug að lax og annar fiskur sér lítt hefðbundið agn veiðimanna og tekur það því illa eða ekki. Veiði hefur hins vegar verið nokkur í þverám Þjórsár þó að uppvaxtarsvæði laxins séu í Þjórsá sjálfri. Eins og kunnugt er hefur Landsvirkjun áformað byggingu þriggja virkjana í neðri hluta Þjórsár; Hvamms-, Holta-, og Urriðafossvirkjun. Áform um að gera Þjórsá að kosti til stangveiði fer ekki saman við þær hugmyndir, að mati Orra sem hefur bent á að líklega séu allar hrygningar- og uppeldisstöðvar fyrir lax fyrir ofan Urriðafoss. Mat Orra er að verði virkjunaráform að veruleika séu laxa- og sjóbirtingsstofnarnir líklegir til að deyja út. Ef hugmyndir um hreinsun Þjórsár reyndust raunhæfar og gengju eftir telur Orri líklegt að úr yrði ein besta laxveiðiá við Atlantshaf. „Þetta yrði mikil tekjulind fyrir samfélagið, enda hefur reynslan sýnt að hverjir 40 laxar sem eru veiddir á stöng skila einu ársverki. Tólf hundruð störf liggja að baki 50 þúsund laxa veiði á stöng. Það skilar 12 milljörðum í beinar og afleiddar tekjur fyrir þjóðfélagið,“ segir Orri. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sjá meira