Auðlindasjóður og nýting í 25 til 30 ár 15. febrúar 2012 07:30 Samkvæmt skýrslu stýrihóps iðnaðarráðherra segir að búið sé að virkja um helming af nýtanlegri raforku í vatnsafli og jarðvarma. fréttablaðið/gva
Stofna á auðlindasjóð og leigja orkuauðlindir í 25 til 30 ár samkvæmt orkustefnu Íslands. Auka á vægi endurnýjanlegra orkugjafa. Flutt var inn jarðefnaeldsneyti fyrir 44 milljarða 2010. Gæti hækkað raforkuverð til almennings. Oddný G. Harðardóttir, sitjandi iðnaðarráðherra, mælti fyrir heildstæðri orkustefnu Íslands á Alþingi í gær. Þar kemur fram að þegar er búið að virkja helming af nýtanlegri raforku í vatnsafli og jarðvarma. Skýrslan er unnin af stýrihópi sem iðnaðarráðherra skipaði árið 2009 og var hún lögð fyrir þingið til umræðu í gær. Iðnaðarráðherra mótar síðan endanlega tillögu um orkustefnu Íslands. Í tillögunni segir að velja eigi orkunýtingu af kostgæfni og með hámarks arðsemi að leiðarljósi. Komið verði á fót sérstökum auðlindasjóði sem bjóði út nýtingarsamninga til ákveðins tíma í senn, 25 til 30 ára „eða eftir eðli hvers virkjunarkosts að teknu tilliti til upphafsfjárfestingar og afskriftartíma“. Iðnaðarráðherra sagði stefnt að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. „Þó svo að nær öll raforkuframleiðsla hér á landi eigi uppruna sinn í endurnýjanlegum orkulindum og það sama megi segja um þá orku sem nýtt er til húshitunar, eða um 67%, þá á um 33% af heildarorkunotkun hér á landi uppruna sinn úr jarðefnaeldsneyti, sem nýtt er á fiskiskipaflotann og til samgangna á landi. Hlutfall endurnýjanlegrar orku í samgöngum hér á landi er innan við 1%.“ Árið 2010 var flutt inn jarðefnaeldsneyti fyrir 44 milljarða króna í gjaldeyri og sagði Oddný því til mikils að vinna í þjóðhagslegum sparnaði ef hægt væri að nota innlenda orkugjafa í stað erlendra. Skýrslan fjallar einnig um möguleikann á útflutningi raforku um sæstreng. Oddný lagði til, þegar hún fylgdi skýrslunni úr hlaði, að gerð yrði „heildstæð hagkvæmnikönnun á lagningu sæstrengs til Evrópu, þar sem lagt verði mat á samfélagslegan ábata við slíka framkvæmd að frádregnum samfélagslegum kostnaði“. Stjórnarandstæðingar fögnuðu margir hverjir tilkomu skýrslunnar, en höfðu þó ýmislegt við hana að athuga. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hvort hún fæli í sér hærra raforkuverð. Hann gaf lítið fyrir þau orð ráðherra að skýrslan væri til umræðu; um gríðarlega mikilvægt mál væri að ræða og ekki hægt að henda fram hálfköruðum hugmyndum. Nokkur umræða varð um hve mikil orka væri nýtanleg og hve hratt ætti að ganga í nýtingu hennar.kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira