Furða sig á vægum barnavændisdómi 14. febrúar 2012 07:00 Pilturinn hefur verið í óreglu og dvelur nú á meðferðarstofnun. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær að móðir hans telur dóminn yfir manninum of vægan. Fréttablaðið/gva
Lögfræðingur Barnaverndarstofu segir tólf mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm manns sem keypti vændi af fjórtán ára dreng vekja furðu. Mikið tillit er tekið til aðstæðna mannsins sem missti vinnuna og hefur leitað sér hjálpar. Lögfræðingur Barnaverndarstofu segir furðu sæta hversu vægan dóm fyrrverandi grunnskólakennari á Akranesi fékk í síðustu viku fyrir að kaupa vændisþjónustu af fjórtán ára dreng. „Þarna er um fullframið kynferðisbrot að ræða, oftar en einu sinni, gegn barni undir fimmtán ára aldri, og þar að auki er verið að kaupa af því vændi, þannig að það vekur furðu okkar hversu væg refsingin er,“ segir Heiða Björg Pálmadóttir, lögfræðingur Barnaverndarstofu. Maðurinn hlaut eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa í tvígang haft mök við pilt sem þá var fjórtán ára „án þess að gæta nægjanlegrar varúðar um aldur piltsins“, eins og segir í ákæru, haft við hann munnmök og endaþarmsmök og greitt honum þrjátíu þúsund krónur fyrir í hvort skipti. Í dómi Hjartar O. Aðalsteinssonar er vitnað til mats geðlæknis, þar sem fram kemur að „um sé að ræða vel gefinn og vel gerðan samkynhneigðan mann sem um árabil hafi lifað í felum með kynhneigð sína. Hann hafi freistast til að leita eftir samskiptum við aðra karlmenn í netheimum og hafi þetta orðið til þess að hann hafi verið afhjúpaður með miklum afleiðingum fyrir hann og fjölskyldu hans og hafi hann misst starf sitt.“ Maðurinn hafi tekið vel á sínum málum síðan, farið í áfengismeðferð og meðferð við kynlífsfíkn og enginn grunur sé til staðar um barnagirnd eða langanir til annars konar afbrigðilegs kynlífs. Með hliðsjón af því og skýlausri játningu megi skilorðsbinda refsinguna. „Þetta eru töluvert alvarleg brot,“ segir Heiða og bendir á að eftir hennar bestu vitund sé þetta í fyrsta sinn sem fullorðinn einstaklingur er dæmdur fyrir að kaupa vændisþjónustu af barni hérlendis. „Þessi dómur er því væntanlega fordæmisgefandi ef önnur slík mál koma upp.“ Ríkissaksóknari hefur ekki ákveðið hvort dómnum verður áfrýjað til Hæstaréttar. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi Innlent Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Sjá meira