Sammála um annað en ESB 13. febrúar 2012 03:00 Margrét Tryggvadóttir
Stofnfundur nýrrar breiðfylkingar um framboð til næstu alþingiskosninga var haldinn í gær. Að fylkingunni standa auk annarra þingmenn Hreyfingarinnar, Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn og ýmis grasrótarsamtök. „Það er vilji til þess hjá þessum hópum að vinna að þessu, en það er opið fyrir að fleiri bætist í hópinn og ekki víst að allir skili sér í endahöfn,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar. Sameiginlegt framboð hefur gengið undir vinnuheitinu Breiðfylkingin, en óskað var eftir hugmyndum að heiti á fundinum í gær. Margrét segir mikinn samhljóm hafa verið um flest atriði svokallaðrar kjarnastefnu fylkingarinnar, en nú taki við málefnavinna fyrir framhaldsaðalfund sem til standi að halda eftir mánuð. „Það var alger samstaða um mál eins og afnám verðtryggingar og leiðréttingu húsnæðislána,“ segir Margrét. Hún segir fundarmenn þó ekki hafa verið sammála um hvernig fara eigi með aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið. Fyrir fundinum lá tillaga um að ljúka viðræðum og leyfa þjóðinni að ákveða framhaldið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ekki náðist samstaða um það, þar sem sumir vildu hætta viðræðum, og aðrir vildu kjósa um hvort halda ætti viðræðum áfram.- bj
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira