Innlent

Ekki hægt að fylgjast með sprengjusmiðum

Lögregla hefur ekki heimildir til að fylgjast með því hvort menn séu að sanka að sér efnivið í sprengju, svo sem áburði eða eldsneyti. Til þess að unnt sé að kanna slíkt þarf ábending að berast um grunsamlegt athæfi.

Frumvarp um forvirkar rannsóknarheimildir til handa lögreglu hefur verið kynnt í ríkisstjórn og er nú til meðferðar í þingflokkum stjórnarflokkanna. Ögmundur Jónasson sagðist á Alþingi í síðustu viku leggja áherslu á að flýta framlagningu þess.

Lögregla hefur margsinnis látið í ljósi það mat sitt að slíkar heimildir skorti til að unnt sé að taka af festu á skipulagðri glæpastarfsemi og kanna möguleika á hryðjuverkum hér á landi.

Reyndar hefur ekki verið fjallað sérstaklega um hættuna af hryðjuverkum á Íslandi opinberlega síðan greiningardeild Ríkislögreglustjóra birti hættumat sitt árið 2008. Hættustigið var þá metið lágt, en ítrekað að rannsóknarheimildir skorti.

„Möguleikar lögreglunnar á Íslandi til þess að fyrirbyggja hryðjuverk eru því ekki þeir sömu og á hinum Norðurlöndunum. Þessu fylgir einnig að lögreglan hérlendis hefur mun takmarkaðri upplýsingar um mögulega ógn eða hættulega einstaklinga, sem kunna að fremja hryðjuverk," sagði í hættumatinu.

Slíkar heimildir duga þó ekki í öllum tilvikum. Þannig gat norski fjöldamorðinginn Anders Breivik keypt mikið magn af áburði án þess að það vekti grunsemdir þarlendra yfirvalda undir því yfirskini að hann stundaði búskap.

Þá hefur einnig verið bent á að eftirliti með sprengiefni á borð við dínamít sé ábótavant. Dæmi eru um að því hafi verið stolið í stórum stíl af verktökum án þess að það uppgötvist strax.

Rannsókn lögreglu á sprengingu í Hverfisgötu á miðvikudag stendur enn. Í gærkvöldi hafði enn enginn verið handtekinn vegna málsins.

- sh /




Fleiri fréttir

Sjá meira


×