Íbúar við Tjarnargötu andmæla gistiheimili 19. janúar 2012 07:45 Íbúar í nágrenninu hafa skrifað undir mótmælaskjal vegna reksturs heimagistingar í Tjarnargötu 46 sem starfrækt hefur verið frá árinu 2010. Fréttablaðið/Anton
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafnar ásökunum íbúasamtaka um losaraleg vinnubrögð í framkvæmd reglugerða um gististaði. Eftirlitið er þó samstiga íbúunum í að skora á borgaryfirvöld að koma böndum á gististaði í íbúðabyggð. Reykjavíkurborg Íbúasamtök miðborgar Reykjavíkur segja reynslu íbúa á nágrenni Ráðhússins benda eindregið til þess að framkvæmd stjórnsýslunefnda á reglugerðum sé „vægast sagt losaraleg". Í bréfi íbúasamtakanna til borgarstjórnar er vísað til reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur hafi samþykkt rekstur heimagistingar fyrir allt að sextán gesti í einbýlishúsi í grónu íbúðahverfi. Það hafi nefndin virst gera án þess að uppfylla rannsóknarskyldu. Hið sama gildi um byggingarfulltrúa. Umrætt hús er Tjarnargata 46. „Um var að ræða stöðugan straum af ferðamönnum sem voru að koma og fara frá húseigninni á öllum tímum sólarhrings, ekki síst síðla nætur og snemma morguns. Þessu fylgdi aukin umferð bíla með tilheyrandi umferðargný, hurðaskellum og skvaldri fólks," segja íbúasamtökin um reynsluna sem komin var á reksturinn áður en fyrrnefndir aðilar veittu leyfi. Undirskriftir nágranna gegn heimagistingunni voru sendar borgarstjórn í ágúst í fyrra. Íbúasamtökin segja samanburð á veittum leyfum annars vegar og auglýsingum gistiheimila hins vegar leiða í ljós að tvö af hverjum þremur gistiheimilum séu starfrækt án leyfis. Þeirri „eindregnu ósk" sé beint til borgaryfirvalda, að sjá til þess að stjórnsýslunefndir á hennar vegum fari að reglum varðandi heimagistingu. Bréfið var lagt fram í heilbrigðisnefnd Reykjavíkur í síðustu viku ásamt umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. „HER vísar aðdróttunum íbúasamtakanna á bug en þær eiga sér sennilega nokkrar skýringu í vanþekkingu á málefninu," segir heilbrigðiseftirlitið (HER) og kveðst vinna eftir ströngum verklagsreglum og framfylgja lögum og reglum. HER segist ekki kannast við leyfisveitingar sem brjóti í bága við skipulag. „Hins vegar tekur HER undir áhyggjur íbúasamtakanna og telur að koma þurfi böndum á fjölda og tegundir gististaða í íbúðabyggð," segir HER og skorar á borgaryfirvöld að setja heimagistingu og íbúðagistingu frekari skorður. Magnús Skúlason, formaður íbúasamtakanna, segir vandamálið einmitt vera að engin bönd séu á heimagistingu. „Það er hægt að lauma inn heimagistingu alls staðar. Ef komin er heimagisting í hvert hús eru menn komnir með heilt túristaþorp." gar@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Sjá meira