Segir útilokað að ljúka störfum í júní 18. janúar 2012 08:30 Í þjóðaröryggisstefnu þarf að fjalla um vá sem gæti steðjað að Íslandi, til dæmis náttúruhamfarir, hryðjuverk eða netárásir. Fréttablaðið/vilhelm
Útilokað er að nefnd sem móta á þjóðaröryggisstefnu Íslands ljúki störfum í júní eins og Alþingi samþykkti í september síðastliðnum þar sem enn er ekki búið að skipa nefndina. Þetta segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, tilvonandi fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni. Alþingi samþykkti 16. september tillögu Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra um að hann fengi umboð til að skipa nefndina. Engin þjóðaröryggisstefna hefur verið til hér á landi, og hefur þörfin fyrir hana aukist frá því að bandaríska varnarliðið hvarf af landi brott árið 2006. Samkvæmt ákvörðun Alþingis eiga Samfylkingin, Vinstri græn, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur að skipa tvo þingmenn í nefndina og Hreyfingin einn. Formaður nefndarinnar verður skipaður af utanríkisráðherra. Ragnheiður Elín segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tilnefnt sína fulltrúa seint á síðasta ári, en síðan hafi ekkert gerst, og nefndin ekki verið skipuð af ráðherra. Vegna þessa segir hún fráleitt að ætla sér að ljúka við gerð þjóðaröryggisstefnu fyrir lok júní, eins og samþykkt var á Alþingi. Útilokað sé að vinna undir slíkri tímapressu, enda lögð áhersla á að ná samstöðu um stefnuna. Fjallað verður um fjölbreytt mál í nefndinni, svo sem ógnir af völdum hryðjuverka, skipulagðrar glæpastarfsemi, náttúruhamfara, stórslysa og netárása. Líklegt er að mestur styr muni standa um stefnu Íslands þegar kemur að hefðbundnum hernaðarvörnum. Ekki náðist í Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra vegna málsins í gær. - bj
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Sjá meira