Tollgæslan tók tólf kíló af eiturlyfjum 16. janúar 2012 05:00 Tollgæslan að störfum í Leifsstöð með fíkniefnahundinn Nelson, sem hefur reynst ómetanlegur við gæsluna.
Tollgæslan lagði hald á rúmlega 12,5 kíló af fíkniefnum sem reynt var að smygla hingað til lands á síðasta ári í gegnum Leifsstöð. Þar af voru tvær flöskur með amfetamínbasa sem hefðu getað gefið rúmlega 4,6 kíló af amfetamíni hvor, samkvæmt útreikningum. Auk þessa stöðvaði tollgæslan smygl á tæplega 4.500 LSD stykkjum og rúmlega 66 þúsund e-töflum í Leifsstöð, samkvæmt tölum sem teknar hafa verið saman fyrir Fréttablaðið. Ef litið er á þjóðerni þessara 28 smyglara sem teknir voru í Leifsstöð á nýliðnu ári var þar um að ræða fimmtán Íslendinga, tvo Litháa, tvo Pólverja, fjóra Dani, tvo Frakka og einn frá Ítalíu, Grænlandi og Þýskalandi. Af þessum 28 manna hópi voru tuttugu og einn karlmaður og sjö konur. Sá yngsti sem tollgæslan stöðvaði var danskur piltur, aðeins sextán ára, og sá elsti 52 ára karlmaður. Pilturinn hafði komið frá Kaupmannahöfn og dvalið í Reykjavík. Hann var á leiðinni héðan til Grænlands þegar hann var stöðvaður með tæp 200 grömm af hassi. Annar piltur, sautján ára Íslendingur, var einnig tekinn með 36 þúsund e-töflur. Langflestir smyglaranna voru að koma frá Kaupmannahöfn eða þrettán. Aðrir komu frá London, Amsterdam, Las Palmas á Kanaríeyjum, París og Frankfurt. „Þetta er svipuð mynd og við höfum verið að sjá í gegnum árin,“ segir Kári Gunnlaugsson yfirtollvörður. „Þarna er öll flóran, konur og karlar á öllum aldri. Við höfum verið að taka fólk um sjötugt og alveg niður í sextán ára.“ Kári segir hins vegar að breytingar hafi orðið á magni tegunda fíkniefna, sem reynt hefur verið að smygla til landsins í gegnum Leifsstöð. „Það er mjög lítið tekið af hassi nú orðið. Ástæðuna teljum við vera þá að framleiðslan hafi færst inn í landið. Þá er deginum ljósara að einhver hluti af framleiðslu amfetamíns fer fram hér á landi. Við sjáum það á amfetamínbasa sem reynt hefur verið að smygla hingað inn til þess að fullvinna hér. “ Kári segir að smyglararnir reyni stöðugt að finna nýjar leiðir til að koma fíkniefnum til landsins, meðal annars með sérútbúnum töskum.jss@frettabladid.is
Mest lesið „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök Innlent „Mjög, mjög sorglegt“ Erlent Eric Dane er látinn Erlent Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Erlent Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Andrew látinn laus Erlent Fleiri fréttir Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök „Áratuga afturför“ og frost í greininni Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Jötunheimar á Selfossi verður tólf deilda leikskóli „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Sérsveitin kölluð út en engum skotum reyndist hleypt af Söguleg handtaka og umdeildir skannar Brotist inn í leikskóla í Reykjavík Allt tiltækt slökkvilið slökkti sinueld Bráðabirgðaákvæði um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Hollenski skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Jan Timman er látinn Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Skipulagsstofnun lögð niður Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Rósa Björk býður sig fram í formann VG Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundi Inga hafnað „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Sjá meira