Skýrsla um Vaðlaheiðargöng falin á Háskólavef 14. janúar 2012 05:00 Kristján L. Möller
Skýrsla um Vaðlaheiðargöng sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann fyrir samgönguráðuneytið árið 2010 var aldrei birt opinberlega af hálfu ráðuneytisins. Þetta kom fram í Morgunblaðinu í gær. Samkvæmt skýrslu Hagfræðistofnunar þurfa veggjöld í fyrirhuguð Vaðlaheiðargöng að vera um tvöfalt hærri en gert er ráð fyrir í núverandi áætlunum félags um göngin. Þá felist áhætta í því að vegfarendur muni áfram geta ekið Víkurskarð í stað þess að greiða í göngin sem myndi þó spara þeim um sextán kílómetra akstur. Samgönguráðherra á árinu 2010 var Kristján L. Möller, alþingismaður Samfylkingar úr Norðausturkjördæmi. Kristján er stjórnarmaður í Vaðlaheiðargöngum ehf. Ekki náðist í Kristján í gær. „Það gleymdist að birta skýrsluna hjá okkur en hún var birt mjög fljótlega á vef Hagfræðistofnunar. Það þarf að leita og gramsa svolítið til að sjá hana þar,“ segir Jóhannes Tómasson, upplýsingafulltrúi innanríkisráðuneytisins sem nú fer með samgöngumál. Jóhannes segir að þótt skýrslan hafi ekki verið birt opinberlega af hálfu samgönguráðuneytisins, frekar en ýmis önnur gögn í málinu, hafi hún verið kynnt í ríkisstjórn og rædd í nefnd um gjaldtöku vegna stórframkvæmda. Skýrslan hefur nú verið sett inn á vef innanríkisráðuneytisins. Vaðlaheiðargöng eru nú til umfjöllunar í bæði fjárlaganefnd og samgöngunefnd Alþingis. Málið verður á dagskrá samgöngunefndar á mánudagsmorgun. - gar
Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Fleiri fréttir Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Þyrlan aftur á leið austur vegna umferðarslyss Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Tollahækkanirnar vonbrigði og þrýstir á um fund sem fyrst Forsætisráðherra ósátt með tolla og pólfarar á Húsavík Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Sjá meira