Innlent

Björguðu ökumanni sem sat fastur í Víkurskarði

Björgunarsveit var kölluð út frá Svalbarðsströnd í nótt til að aðstoða ökumann, sem sat fastur í bíl sínum á Víkurskarði. Þar hafði skafið í skafla.

Leiðangurinn gekk vel og amaði ekkert að ökumanninum, þegar að var komið. Að öðru leiti er ekki vitað til að ökumenn hafi lent í vandræðum á vegum landsins í gærkvöldi og í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×