Innlent

Samfylking og VG starfa áfram saman í Kópavogi

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna ákváðu á fundi sínum í gærkvöldi að halda áfram samstarfi í bæjarstjórn Kópavogs.

Í tilkynningu frá fundinum segir að brotthvarf Næstbesta flokksins og Lista Kópavogsbúa úr meirihlutasamstarfinu hafi leitt til óvissuástands um stjórn bæjarins, og úr þeirri stöðu þurfi að vinna með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi.

Eins og staðan er núna, eru Samfylkingin og Vinstri grænir í minnihluta í bæjarstjórninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×