Innlent

Skrökva nær sínu fram og ákveður að hætta

Frá fundi Skrökvu í dag.
Frá fundi Skrökvu í dag. mynd/skrökva
Skrökva, félag flokksbundinna framapotara, var lögð niður við hátíðlega athöfn fylkingarinnar í dag. Fylkingin telur sig hafa náð fram helstu markmiðum sínum í stúdentapólitíkinni og sér því grundvöll fyrir áframhaldandi starfsemi á því sviði.

Fylkingin mun þó lifa áfram í breyttu formi. Þá aðallega sem óformlegur félagsskapur flokksbundinna framapotara.

Í tilkynningu frá Skrökvu kemur fram að fylkingin hafi verið stofnuð til höfuðs flokkapólitík, meirihlutamyndunum, listakosningum og hlægilegri kosningabaráttu í Stúdentaráð Háskóla Íslands.

„ Í haust samþykktu allar fylkingar í Stúdentaráði ný lög fyrir ráðið sem taka gildi árið 2013; þar sem kosið verður innan sviða, einstaklingum og smærri listum gefst kostur á að bjóða sig fram og kjósendur geta kosið þvert á lista. Auk þess var starfræktur meirihluti allra fylkinga árið 2010 og meirihluti Vöku 2011 hefur að nokkru starfað í anda þess. Kosningabaráttan hefur verið málefnalegri og samstarfið innan Stúdentaráðs gott."

Í ljósi þess árangurs sem fylkingin hefur náð í stúdentapólitíkinni verður Skrökva því lögð niður.

„Skrökva þakkar fyrir sig; stuðningsmönnum sínum, velunnurum og síðast en ekki síst vinum okkar og samstarfsfólki í Vöku og Röskvu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×