Innlent

Biður Vigdísi að treysta þjóðinni

Vigdís Hauksdóttir
Vigdís Hauksdóttir
Alþingi„Treystu nú þjóðinni til að meta það hvort hún telji það rétt eða rangt að Ísland gangi í ESB.“ Svo mælti Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra við Vigdísi Hauksdóttur, þingkonu Framsóknarflokksins, á Alþingi í gær.

Vigdís hafði beint fyrirspurn til Jóhönnu um það hvort henni hugnaðist að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið, ýmist samhliða forsetakosningum í sumar eða þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur að nýrri stjórnarskrá.

Jóhanna kvaðst treysta þjóðinni til að taka afstöðu til samnings þegar hann lægi fyrir.

- sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×