Gera ekki kröfu um bæjarstjórastólinn Boði Logason skrifar 20. janúar 2012 16:56 Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Kópavogs. „
Það var eitt af megin kosningaloforðum Y-listans að ráða faglegan bæjarstjóra og við munum virða það," segir Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi, aðspurður hvort þeir muni gera kröfu um bæjarstjórastólinn. Þeir hófu formlegar viðræður við Næst besta flokkinn og Y-lista - Lista Kópavogsbúa, í dag. Í samtali við fréttastofu segir Ármann að í hádeginu dag hafi fulltrúar flokkanna þriggja hist og spjallað lítið saman. Viðræður þeirra munu þó hefjast formlega um helgina. „Það fór mjög vel á með okkur og það er óhætt að segja að við erum sammála um margt í megináherslum flokana varðandi þau verkefni sem eru framundan." Eins og áður segir, munu sjálfstæðismenn virða þá kröfu Y-listans að bæjarstjórinn verði ráðinn á faglegum nótum. Aðspurður hvort að það komi til greina að Guðrún Pálsdóttir haldi áfram starfi sínu í bæjarstjórastólnum segir Ármann: „Það er bara eitt af því sem mun skýrast um helgina þegar og ef málefnasamningur verður gerður," segir hann. Meirihlutinn sprakk þegar bæjarstjóra Kópavogs var sagt upp. Hjálmar Hjálmarsson, oddviti Næst besta flokksins, sagðist þá ekki geta unað við þau vinnubrögð sem einkenndu uppsögnin. Skömmu síðar gekk Listi Kópavogsbúa úr skaftinu. Sex bæjarfulltrúa þarf til að mynda meirihluta í Kópavogi. Sjálfstæðismenn eiga 4 fulltrúa, Næst besti flokkurinn 1 og Y-listi 1.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira