Risastórt grjót fyrir utan Alþingi - fleygur rekinn í steininn 20. janúar 2012 12:07 Eins og sést á myndinni er grjótið nokkuð mikið um sig. Mynd / GVA
Það hafa eflaust einhverjir rekið upp stór augu þegar þeir komu auga á risastórt grjót sem stendur á Austurvelli fyrir framan Alþingi. Um er að ræða listaverkið Svarta keilan, minnisvarði um borgaralega óhlýðni, sem samanstendur af 180 senímetra háum steindranga. Um er að ræða gjörning á vegum spænska andófslistamannsins Santiago Sierra. Gjörningurinn felst í því að reka tæplega hálfs metra svarta stálkeilu í bjargið og framkalla þannig varanlega sprungu í það. Með gjörningnum vill Sierra minna á mikilvægi borgaralegra réttinda í lýðræði og þar með talið rétt þegna til að neita því að hlýðnast óréttlátum lögum og kröfum yfirvalda. Keilan mun standa áfram í steininum en sprungunni er ætlað að sýna þau áhrif sem einstök mótmæli geta haft. Á heimasíðu Listasafns Reykjavíkur kemur fram að keilan sjálf vísi í svarta keilulaga hatta sem sakfelldir einstaklingar voru látnir ganga með til háðungar af rannsóknaréttinum á 12. öldinni. Á minnisvarðanum verður komið fyrir skilti sem á stendur á íslensku og ensku setning úr „Yfirlýsingu um réttindi manna og borgara" sem voru birt sem formáli að stjórnarskrá sem franska þingið samþykkti árið 1793: „Þegar ríkisstjórn brýtur á rétti þegnanna, þá er uppreisn helgasti réttur og ófrávíkjanlegasta skylda þegnanna sem og hvers hluta þjóðarinnar." Gjörningurinn fer fram á sama tíma og þingheimur tekst á um tillögu Sjálfstæðisflokksins um að afturkalla ákæru á hendur Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Fyrir áhugasama þá mun Santiago framkvæma gjörninginn sjálfur klukkan eitt, en hann er heimsþekktur listamaður.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Sjá meira