Innlent

Árleg sýning Ljósmyndaskólans hefst í dag

Ein af ljósmyndunum sem verður til sýnis.
Ein af ljósmyndunum sem verður til sýnis. mynd/ Díana Júlíusdóttir
Árleg ljósmyndasýning fyrsta árs nema við Ljósmyndaskólann opnar í dag. Alls munu 19 nemendur sýna verk sín þar sem ýmislegt verður tekið, þar meðal má nefna portrait, landslag, kynferðislegt ofbeldi, tísku og átröskun.

Sýningin er haldin að Hólmaslóð 6 í Reykjavík og opnar klukkan 15:00 í dag. Þá stendur sýningin til 3. júní.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um sýninguna á vefsíðu Ljósmyndaskólans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×