Lífið

Fegurðarráð beint frá Victoriu Beckham

MYNDIR / COVER MEDIA
Kryddpían Victoria Beckham er óhemju dugleg að leyfa aðdáendum sínum að fylgjast með sér á Twitter.

Hún setti inn mynd af Johnson's-barnaolíu á Twitter-reikning sinn á dögunum og segir olíuna vera sitt helsta fegurðarráð þegar hún er á ferðalögum.

"Ferðaráð, setjið barnaolíu á andlitið. Hún verndar húðina í flugvélum, læsir rakann inni."

Þar hafiði það! Það þarf ekki allt að kosta morðfjár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.