Lífið

Erfði módellúkkið frá mömmu

MYNDIR / COVER MEDIA
Mæðgurnar Kim Basinger og Ireland Baldwin skemmtu sér konunglega á ströndinni á Maui á Havaí á dögunum.

Eplið fellur greinilega ekki langt frá eikinni því Ireland virðist hafa erft góðu genin frá móður sinni, en faðir hennar er svo sem ekkert slor - sjálfur Alec Baldwin.

Ireland er orðin sautján ára og eru þær mæðgur afskaplega nánar. Ireland er líka mikil pabbastelpa en hún gekk með honum upp að altarinu þegar hann kvæntist Hilariu Thomas fyrr á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.