Smáralind heimtar turn upp eða niður 15. febrúar 2012 08:00 Framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Smáralindar segir kröfuhafana sem eru eigendur Norðurturnsins verða að sýna ábyrgð og annaðhvort ljúka við byggingu skrifstofuhússins eða rífa það sem komið er. Fréttablaðið/Stefán
Eigendur Smáralindar vilja að Kópavogsbær þvingi kröfuhafa Norðurturnsins til að ljúka við að reisa turninn eða rífa hann. Þrotabú turnsins telur Smáralind hins vegar skulda því 1,3 milljarða króna. Lausn virðist ekki í augsýn á næstunni. „Það er ekki hægt að vera með hálfbyggt hús, sem er í raun slysagildra, utan á einni glæsilegustu verslunarmiðstöð landsins,“ segir Sturla Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf. Sturla hefur skrifað bæjaryfirvöldum í Kópavogi vegna svokallaðs Norðurturns sem hefur setið hálfkláraður utan á vesturenda Smáralindar frá því á árinu 2008. Hann kveðst ósáttur við að verkið hafi verið stopp í mörg ár hjá skiptastjóra og kröfuhöfum. „Það er enginn skilningur – menn fara á sínum hraða og ég veit ekki hvað þeir ætla sér. Það eru ekki fyrirliggjandi neinar breytingar á því þannig að ég óskaði eftir því við Kópavogsbæ að hann myndi hlutast til um þessa eign. Menn verða að axla ábyrgð á því að vera með svona eignir í þrotabúi. Annað hvort klára menn bygginguna eða ekki. Það er ekkert annað að gera,“ segir Sturla. Að sögn framkvæmdastjórans hefur tilvist Norðurturnsins slæm áhrif á einn megininnganga Smáralindar sem orðið hafi fyrir gríðarlegu fjárhagslegu tapi. Sjálf hafi Smáralind meðal annars lagt tugi milljóna króna í lagfæringar á innganginum. „Við óskum eftir skýrari svörum um framtíð þessa húss því það er náttúrulega ekki hægt að búa við að það sé með þessum hætti næstu árin,“ undirstrikar Sturla. Fasteignafélag Íslands var móðurfélag bæði Smáralindar og Norðurturnsins. Meðal kröfuhafa í bú Norðurturnsins eru Tryggingamiðstöðin, lífeyrissjóðir og Íslandsbanki. Heildarkrafan er um 5,5 milljarðar króna. Stærstu kröfuhafarnir eiga veðkröfu á sjálfa bygginguna. Skotið hefur verið á að verðmæti hennar sé á bilinu einn til tveir milljarðar króna. Helstu lausnir fyrir kröfuhafana er að selja mannvirkið í núverandi mynd eða leggja fé í að ljúka byggingu þess. Kaupendur bíða ekki í röðum og mikil áhætta fylgir því að verja fjármagni í bygginguna sem á að verða fimmtán hæðir. Það flækir málin frekar að þrotabú Norðurturnsins krefst þess að eigendur Smáralindar greiði búinu 1,3 milljarða króna. Það sé samkvæmt samkomulagi sem meðal annars tengist afnotum Smáralindar af bílakjallara í turninum. Smáralind segir samkomulag um það ekki hafa legið fyrir og það verður því verkefni dómstóla að skera úr um réttmæti kröfunnar.gar@frettabladid.is
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira