Glæsihótel á leynistað á Suðurnesjum 15. febrúar 2012 19:12
Smíði ferðamannaþorps, með stóru hóteli og tugum smáhýsa, er í undirbúningi á einum hrjóstrugasta og fáfarnasta stað Suðurnesja. Stefnt er að því að fjögurra milljarða króna framkvæmdir hefjist í byrjun næsta árs. Svæðið er vestan við Keflavíkurflugvöll, við Ósa, milli Hafna og Sandgerðis, og var bannsvæði meðan herstöðin var starfrækt en varð ekki vel aðgengilegt almenningi fyrr en nýr hringvegur opnaðist fyrir fjórum árum. Aðilar í byggingargeira á Suðurnesjum hafa stofnað félagið Ósa um verkefnið en því stýrir Viðar Már Aðalsteinsson. Í viðtali í fréttum Stöðvar 2 segir Viðar að þeir byggi hugmyndina á reynslu af erlendum ferðamönnum sem sjái og upplifi hafið, kraftinn og gnauðið við Íslandsstrendur. Við svokallaða Þórshöfn, þar sem herinn rak áður leynilega kafbátahlustunarstöð, hafa Kanon arkitektar teiknað 60 herbergja fjögurra stjarna hótel ásamt sextíu smáhýsum, einnig upphitaða baðlaug í fjöruborðinu og fuglaskoðunarhús. Ósamenn vonast til að hefja framkvæmdir upp úr næstu áramótum og að fyrstu gestirnir komi á svæðið ári síðar, árið 2014. Áætlað er að uppbyggingin kosti hátt í fjóra milljarða króna en Ósar eru í viðræðum við bæði innlenda og erlenda fjárfesta. Viðar segir þá bjartsýnni í dag en fyrir hálfum mánuði um að áætlanir gangi upp og segir þetta líta allt vel út.
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Fleiri fréttir Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Sjá meira