Milljónir barna munu líða fyrir vannæringu Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. febrúar 2012 09:55 Stjórnvöld ríkja í heiminum þurfa að fara að taka á málum varðandi fæðuöryggi. mynd/ afp.
Áætla má að 450 milljónir barna í heiminum muni líða fyrir líkamlegan og andlegan vanþroska af völdum vannæringar á næstu 15 árum fari stjórnvöld ríkja í heiminum ekki að standa við skuldbindingar sínar um að sporna við matvælakreppu. Þetta eru niðurstöður skýrslu Barnaheilla - Save the Children sem kynnt verður í dag. Í skýrslunni segir að vannæring sé undirliggjandi ástæða þriðjungs alls barnadauða í heiminum, en þetta málefni hafi ekki fengið sömu athygli og fjármagn og til dæmis alnæmi eða malaría. Það þýði að á meðan tekist hafi að draga úr barnadauða af völdum malaríu um þriðjung frá árinu 2000, hafi tölur um vannæringu barna í Afríku einungis lækkað um innan við 0,3%. Vannæring barna verður umræðuefna á málþingi sem haldið er á facebook. Umræðan hefst kl. 14.00 og meðal þátttakenda eru Árni Snævarr, upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum, Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarkona og leikskáld, Egill Helgason fjölmiðlamaður, Gunnar Salvarsson, kynningarstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, Helga Vala Helgadóttir héraðsdómslögmaður, Katrín Oddsdóttur, stjórnarráðsliði og héraðsdómslögmaður, Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verk-og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands og Kristrún Heimisdóttir, fyrrum aðstoðarmaður utanríkisráðherra og lögfræðingur. Umræðan er öllum opin og eru gestir hvattir til að deila viðburðinum og bjóða sem flestum með sér. Jón Kalmann Stefánsson rithöfundur skrifar opið bréf til Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra vegna málsins í dag. Þar bendir hann á að á hverri klukkustund látast 300 börn af völdum vannæringar í heiminum. Það sé eins og hvert einasta barn í 25 leikskólum Reykjavíkur myndi deyja í dag.Smelltu hér til að sjá málþingið.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Sjá meira