Innlent

Borg í stað hins spillta Dallis

ÞJ skrifar
Tonio Borg
Tonio Borg
Evrópusambandið hefur tilnefnt Maltverjann Tonio Borg í embætti framkvæmdastjóra heilbrigðismála. Hann tekur sæti landa síns, Johns Dalli, sem þurfti að segja af sér vegna spillingarmála.

Náinn samstarfsmaður Dallis var staðinn að því að bjóða sænsku tóbaksfyrirtæki fund með framkvæmdastjóranum gegn greiðslu.

Borg, sem er skipaður til loka október 2014, hefur þvert á móti gefið fyrirheit um að herða enn á tóbakslöggjöfinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×