Meirihluti vill staðgöngumæðrun 19. janúar 2012 08:30 Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hafði forgöngu um málið, sem var samþykkt á Alþingi í gær. fréttablaðið/anton
Velferðarmál Alþingi samþykkti í gær þingsályktunartillögu um staðgöngumæðrun með 33 atkvæðum gegn þrettán. Fjórir þingmenn sátu hjá og aðrir voru fjarverandi. Þingsályktunartillagan sem samþykkt var í gær felur í sér að velferðarráðherra skipi starfshóp til þess að undirbúa frumvarp til laga sem heimilar staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Frumvarpið á að leggja fram „svo fljótt sem verða má“. Ragnheiður Elín Árnadóttir var fyrsti flutningsmaður en 22 aðrir þingmenn úr öllum flokkum nema Hreyfingunni voru meðflutningsmenn. Árni Johnsen var einn Sjálfstæðismanna á móti tillögunni. Jónína Rós Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði áherslu á að ekki væri verið að samþykkja staðgöngumæðrun. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, samflokksmaður hennar, sagði hins vegar að meirihluti þingsins fylgdi nú Sjálfstæðisflokknum í því að markaðsvæða meðgönguna. Fjórir þingmenn lögðu fram breytingatillögu sem fól í sér að starfshópurinn myndi skoða álitamál um staðgöngumæðrun, og myndi í þeirri vinnu hafa hliðsjón af niðurstöðum annars vinnuhóps sem skilaði áfangaskýrslu um álitaefni árið 2010. Sá hópur lagðist gegn því að staðgöngumæðrun yrði samþykkt. Breytingatillagan var felld en átján þingmenn vildu samþykkja hana. - þeb
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira