Jóhanna kallar eftir sanngirni Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. janúar 2012 11:11 Jóhanna Sigurðardóttir biður um að sér og ríkisstjórninni sé sýnd sanngirni í umræðunni um kjarasamninga. mynd/ GVA.
Jóhanna Sigurðardóttir segir aðila vinnumarkaðarins ekki sýna ríkisstjórninni sanngirni í umræðu um framtíð kjarasamninga. Það ræðst á morgun hvort kjarasamningar sem gerðu voru snemma á síðasta ári haldi gildi sínu eða hvort farið verði fram á endurskoðun á þeim. Ríkisvaldið hafi farið í stórkostlegar aðgerðir með aðilum vinnumarkaðarins tengdum kjarasamningum. Aðilar vinnumarkaðarins, einkum Samtök atvinnulífsins, hafa kallað eftir aukinni fjárfestingu í atvinnulífinu. Jóhanna sagði á þingfundi í dag að vel hefði gengið með ýmsar opinberar framkvæmdir og útlit væri fyrir verkefni fyrir um 75 milljarða á næstunni. Ekki hefði gengið eins vel með mörg verkefni á almenna markaðnum. „Við erum öll af vilja gerð til að þetta nái fram, en til þess þarf að vera sanngirni á báða bóga, sem er ekki," sagði Jóhanna. Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði að við umræðuna um ástand á vinnumarkaði kæmi alltaf sama svarið frá ríkisstjórninni. „Við erum vön því hér í stjórnarandstöðunni að vera sökuð um það að sjá allt í tómu svartnætti og vera að misskilja allt. Það er farið svipuðum orðum um samtöku atvinnurekenda," sagði Birgir, en benti á að félög launþega í landinu sæju heldur ekki efndir ríkisstjórnarinnar á þeim loforðum sem gefin hefðu verið.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira