Innlent

SUF mótmælir aukinni ritskoðun á netinu

Stjórn SUF, Sambands ungra framsóknarmanna lýsir sig andsnúna tilfæringum höfundarréttarsamtaka þegar kemur að aukinni ritskoðun og gjaldheimtu á Internetinu. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið sendi fjölmiðlum í dag. Þar segir að ef þörf er á endurskoðun á höfundarréttarlögum „er nauðsynlegt að hlustað sé á allar raddir samfélagsins án þess að ganga á rétt einstaklinga til tjáningar, einkalífs og fræðslu."

Orðrétt segir síðan: „Ályktunin var unnin í framhaldi af hugmyndum STEF (https://url.is/5lr) og SMÁÍS (http://url.is/5ls) sem vilja aukið vald og hörku í refsingum og eftirliti með meintum höfundarréttarbrotum en þessar hugmyndir samtakanna koma inn í umræðuna á sama tíma og frumvörpin SOPA og PROTECT IP bíða samþykkis Bandaríkjaþings og alþjóðasamningurinn ACTA bíður samþykkis m.a. hjá Evrópuþinginu.

Hægt er að lesa ályktunina á vef SUF.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×