Norðurálshetjan fær skaðabætur frá fyrirtækinu Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. janúar 2012 16:53 Norðurál á Grundartanga.
Hæstiréttur viðurkenndi í dag að Norðurál Grundartanga og tryggingarfélagið Sjóvá væri bótaskylt gagnvart Þórarni Birni Steinssyni, sem er fyrrverandi starfsmaður Norðuráls. Þórarinn höfðaði mál eftir að hann slasaðist við það að bjarga samstarfskonu sinni sem hafði lent undir svokallaðri bakskautaklemmu við vinnu. Þórarinn höfðaði mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn Norðuráli og Sjóvá til að fá bótakröfuna viðurkennda. Héraðsdómur viðurkenndi ekki kröfuna en Hæstiréttur er á öðru máli. Hæstiréttur kemst að þeirri niðurstöðu að telja verði að viðbrögð Þórarins, og samstarfsmanns hans sem lyfti undir klemmuna með honum, hafi verið eðlileg við þær aðstæður sem upp voru komnar. Fyrirfram megi gera ráð fyrir að starfsmenn komi samstarfsmönnum, sem verða fyrir slysum, til hjálpar eftir föngum, ekki síst til að aflétta hættu sem að samstarfsmanni steðjar, eins og að losa hann undan fargi. Hæstiréttur segir að viðbrögð Þórarins og starfsfélaga hans hafi líka verið til þess fallin að draga úr tjóni samstarfsmannsins sem undir farginu lá og voru þau að því leyti í þágu hagsmuna stefnda Norðuráls Grundartanga ehf. sem vinnuveitanda samstarfsmannsins. Af þessu leiði að tjónið sem áfrýjandi varð fyrir, er hann lyfti hinu þunga fargi, teljist til bótaskyldra afleiðinga af þeirri háttsemi sem fyrr var lýst og talin er valda bótaskyldu stefnda Norðuráls Grundartanga ehf.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Sjá meira