Innlent

Rafmagnstengill brann yfir

Allt tiltækt slökkvilið var sent að Klettagörðum á tólfta tímanum í dag þegar tilkynnt var um reyk í Sendibílastöðinni hf. Þegar slökkvilið mætti á svæðið kom í ljós að enginn eldur var laus. Rafmagnstengill hafði ofhitnað og við það fór að rjúka úr honum. Lítil hætta var því á ferðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×