Innlent

Ökumaður slasaðist í bílveltu

Ökumaður slasaðist, en þó ekki alvarlega, þega hann missti stjórn á bíl sínum á Suðurlandsvegi neðan við Hveradalabrekkurnar í gærkvöldi og bíllinn valt út í hraun.

Maðurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en bíllinn er stór skemmdur ef ekki ónýtur. Ísing var á vettvangi slyssins.

Annað hálkuslys varð á fimmta tímanum í nótt þegar bíll lenti á vegstólpa á Reykjanesbraut við Fífuhvammsveg. Ökumaðurinn vankaðist og var flyttur á slysadeild til aðhlynningar og rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×